Vits er þörf þeim er víða rata.

Ég verð kannski bara heima í dag...

05.06.2008 21:42:39 / ranka

Svona er nú það

Jæja þá er sauðburður búin hér á Skútustöðum. Gekk hann nú bara ljómandi vel. Loksins kom vorið hér við Mývatn, en síðasta snjóinn mokuðum við um hvítasunnuhelgina. Svoleiðis var nú það. En nú er sumarið komið og allt orðið grænt og mýið komið. Mér til mikkila gleði. Anskotinn hvað hann getur verið pirrandi þessi xxxxxxxx mývargur. :evil:
Nú fer að styttast í annan endan á þessu starfsnámi mínu. En það er rétt rúmur mánuður eftir. Tíminn líður ólöglega hratt hérna. En það verður nú gott að komast heim. Ég er reyndar ekki kominn með vinnu enþá í sumar en það rettast. Vonandi.
Það er nú mest lítið að frétta héðan. Maður er nú bara búinn að vera á fullu í sauðburði og öðrum vorverkum. Svo maður hefur varla náð að líta upp. Er nú orðinn þrussu klár í að mjólka, þó ég segi sjálf frá og einnig er ég útlærð í að þökkulegja brekkur úr skóflunni framan á traktórnum, en ég og Júlíus vorum í því tvo daga maí mánaðar.  Svo þarf maður að vera duglegur að klára verkefninn núnna í júni svo maður falli nú ekki á þessu starfsnámi.
Flash back... rakst á spólu í Rauð í gær með lögum sem ég og Ninna hlustuðum sem mest á þegar við bjuggum í Níuni frægu á Húsafelli með henni Helgu. Mann reyndar ekkert hvað hljómsveitin eða platan heitir en lögunum man ég vel eftir. Minnti mig á sumrinn á Húsafelli, og síðast og ekki síst Lísu og Ninnu sem ég sakna alllveg í kássu (Við verðum að fara að hittast næst þegar Lísa verður á landinu, allar 3).
Ættli Nían sé en uppi. ??
En allavega ættli ég láti þetta ekki duga í billi, fyrir þá sem hafa áhuga verði ég á ferðinni í Borgarfyrðinnu daganna 17-20 maí. Get ekki beðið eftir að sjá fjöllinn, Kató, pabba og mömmu, og svo auðvitað alla hinna.
Sumar kveðju
Kindin Ranka

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 19:59:16 / ranka

Mæt á Skútustaði...

...og bara nenni ekki að bloga.
Svoleiðis er nú það. Annars er bara mest lítið að frétta.
Brileraði í prófunum, allt annað en ég bjóst við, minnir að ég hafi verið með 8 í meðaleinkun. 8) Svona á að gera þetta. Bjóst reyndar alls ekki við svona góðum einkunum, og er bara þræl ánægð með þetta :d.
En nú er ég mætt í Mývatnsveit, allt hvít hérna annað en í Borgarfjörðinum, er nú allveg búin að fá minn skamt að snjó áður en ég kom hingað til Myvatns svo ég væri allveg til í að losna við hann. Það verður nú kannski ekki í bráðinni. Svo skilst mér að það komi stundum vorhret seinipart mai og allt orðið hvít aftur, Frábært.
En maður reynir nú að láta snjóinn ekki eyðilegja daginn. Annars er nú bara mest lítið að frétta, lífið snýst um að mjólka kýrnar, gefa kindunum, læra og borða.
En jæja man nú ekkert fleira í billi, byð bara að heylsa.
Kindin Ranka :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 15:23:53 / ranka

Seint blogga sumir...

...en blogga þó.
Þetta var ekki málshátturinn sem ég fékk í páskaegginu. Ef stendur í hveri lögbók, var minn málsháttur. Það tók mig alla páskanna að fatta hann, en það tókst að lokum. Svona er maður tregur stundum. En páskarnir voru nú bara teknir rólega. Hafði auðvitað samt eingan tíma til að læra eins og ég var búin að plana. Það voru afmælisveisla, flutingar, fermingaveislur og margt annað sem átti hugan minn um páskana. Semsagt allt annað en lærdómur. Vorum svo bara tvö heima í kotinu páskahelgina ég og pabbi og áttum páskaegg og páskalæri eins og við í okkur gátum látið. Lísbet og Kata vour nefnilega fastar á Ísafirði, þeim til mikkila gleði. Páskalærið heppnaðist líka svona glimrandi vel, og ég sem var að elda læri ein í fyrsta skipti. Mér er kannski viðbjargandi í eldhúsinu.
Ummmm, hvað annað.
Eithvað var ég nú búin að lofa að segja frá því sem á daga mína hefur drifið. Það er nú margt og mikkið síðan í Febrúar.
Eithvera helgina fór ég með Höllu og fleiri góðu fólki í Surtshelli og gistum við þar í 20 stiga frosti, og sváfum bara svona ljómandi vel. Halla tók sig vel út með prónana og ég tók mig vel út í loppapilsinu og loppapeysuni sem ég svaf í. Allveg í stil við útilegumanna fyllinginn sem sveif þarna yfir hellagólfum (vötnum). Löppuðum við inn í Draugagil sem var ekki smá flott í vetrarbúningnum. Grílukerti og snjósæng yfir ölllu. Þetta var æðislegt. Semsagt mjög gegjuð og skemmtileg helgi þar á ferðinni.
Viskukýrin, spurningakeppni Hvanneyringa var haldin eitt fimmtudagskvöld í Febrúar. Þar var auðvitað mikkið stuð og stemning. Voru þeir sem sáttu fremst í stór hættu þegar slegist var um hatin(bjölluna). Fólk var einvaldlega barið niður ef það var eithvað að fællast fyrir.
Hvað fleira er að segja frá......
...... Búfjárræktaferðinn. Ekki má gleyma henni, þá var nú bara skrupið Norður, drukkin smá bjór, heimsóktir nokkrir bæir og næturlíf Akureyrar skoðað og reynt. Norðlendingar virtust allveg höndla nokkrar verðandi búfræðinga frá Hvanneyri. Allavega var okkur ekki hend öfugum út frá Akureyri.
Jæja, þetta var nú það helsta sem gerðist i Febrúar, Mars var heldur rólegri. Helst ber að nefna Góugleðina og leikritið Þið munið hann Jörund.  En það var auðvitað fjör á Góugleði, eins og alltaf, bara með þeim betri. Svo fór ég á leikritið í Logalandi, Þið munið hann Jörund. Þvílik snild hjá þeim, meira að segja fór að sjá það aftur á Mánudaginn. Held að það hafi barasta batnað hjá þeim.
Svo fer nú að styttast í að ég fari í Námsdvölina, fer Norður ekki um næstu helgi heldur þarnæstu, og verð þar í 3 mánuði.Vá.  Ættli maður megi nú ekki ljóstra því núna hvert maður sé að fara. Það vitta það nú öruglega samt flestir hvert ég sé að fara en ég mun fara á Skútustaði í Mývatnssveit. Get nú eiginlega ekki sagt annað en mig sé farið að hlakka pínu til. Já og svo eru nú prófin byrjuð. Byrjuðu í morgun. :$ Það er allveg spurning hvort maður hafi náð eða ekki. Hugsa að ég rétt slefi. Vonandi. Allavega fjögur próf eftir, hugsa að ég nái þessu nú allveg. Á allavega allveg að geta það.
En ættli þetta sé bara ekki komið nó í billi. Vona að það verði nú ekki of langt í næsta blogg frá mér. Lofa samt eingu.
Kv frá Hvanó
Kindin Ranka

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 23:36:44 / ranka

Comenta fólk.

Hvenig stendur á því að eignin nema Fríða comentar hjá mér?? Frekar fúlt. Ekki það að mér sé ekki sama. Nenni samt eiginlega ekki að bloga fyrir eina maneskju. Sem ég get allveg eins talað við í síma. Því hún er nú sú sem ég hryngi mest í. Já Fríða ótrúlegt en satt ert það þú. Ég veit ég veit ég tala ekki mikkið í síma, fynnst það bara hundleiðinlegt.
Meðal annara frétta, reyndar er þetta stór frétt en það er komið GMS samband heima.
Jú þið lásuð rétt, Kalmanstunga er komin á kortið hjá Vodafone. Síminn telur enþá að við séum ekki gsm sambands verð. Svo tili hamingju vodafone, þið eruð að fá annan viðskiptavinn til ykkar bara útaf því þið voruð á undan símanum.
Jæja læt þetta duga í bili og ef þið viljið annað blogg endilega kvita. Bara svo ég viti fyrir hverja ég er að blogga.
Kv Kindin Ranka

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 15:26:48 / ranka

Nýtt blog í vinslu...

Þetta er allt að koma.
Kemur allt með kalda vatninu.
Eydísarþema, hellaferð í 20° C frosti, viskukýrin, bjúfjárræktarferð, og margt annað sem ég bara man einganveginn.
Myndir komnar inn frá hellaferð, viskukúni og búfjáræktarferðinni. 
http://picasaweb.google.com/ragnhildurso
http://picasaweb.google.com/arnad86

Kv frá Rokeyri
Ranka :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 18:24:54 / ranka

Janúar

Jæja jólin búin, komið nytt ár og skólinn bryjaður aftur. Allt að komast í rútínu aftur. Snéri sólahryngum þokkalega við um jólinn. Passaði mig á að gera sem minst um jólin og naut þess bara að vera heima í sveitinni. Var í kal um jólinni, fór í jólaboð á annan og svo afmæli til Friðu. Skötuveisla hjá Kidda á Þorlák. Heima í Kal. yfir áramót líka, ég, lísbet og pabbi elduðum hryggin sem ég fékk í jólagjöf frá 11-11, horfðum á skupið og höfðum það bara rólegt og gott. 
Svo byrjaði ég aftur í skólanum í síðustu viku. Allt sett á fullt enda bara níu vikur þessi önn. Það er ekki enþá komið á hreynt hvert við förum í námsdvölina. Það á að byja að plana það í næstu viku. Við vitum samt hvenar við förum en það verður eftir prófinn sem verða strax eftir páska.
Þetta verður strempin önn. Mikkið að læra og lítil tími. Maður verður sko að halda sig við efnið ef allt á ekki að fara til fjandans.
Annars er bara ekkert að fréta héðan svo ég læt þetta bara duga í billi.
Þanga til næst, Ranka


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 18:26:49 / ranka

Annað blog, hlýtur að vera met... Eithver ætti að ath það.

En og aftur kemur blog sökum leti hjá mér að nenna ekki að læra. Er í einu slæmu kasti núna í að nenna bara alls ekki að læra. Þetta er hræðilegt ástand því um leið og ég dett í gírinn þíðir það liklegast a ég þurfi að læra í nótt. Er búinn að aðhafast marg hér á blogsíðuni minni síðasta klukkutíman, setti inn nýja skoðanakönnun. Svona í anda jólana. Það var nú kannski kominn tími til held að ég sé búinn að vera með sömu skoðanakönun í annsi langan tíma. Svo setti ég inn nokrar myndir sem þið finnið hérna neðar á síðunni til vinstri. Svona samansafn af ymsu, fáar en góðar. Svo setti ég inn Gilsbakkaþulu inn í Texta síðuna. Er eithvað í svo mikklu jólaskapi þessa dagan að það er með ólíkindum. Það er langt síðan ég hef varið í svona mikkið jólaskap. Svo til að toppa jólaskapið er ég að fara að á aðventu tónleka Freyju kórsins á eftir og mun Pál óskar og Monika spila með þeim. Hlakka ekki smá til. Verður pottþét rosa flot hjá þeim.

En allvega hefur mér gengið bara vel í þveim prófum sem ég er búinn að taka. Fék 7.1 í Jarðvegsfræði og nytjajurtum, 8 fyri ritgerðinn sem ég skrifaði á sólarhryng, og allment er ég bara búinn að vera fá góðar vetrareinkunir í því sem ér er búinn fá vetrareinkunir Grunar að meðaleinkunnin eigi nú eftir að læka eithvað eftir næsta próf, þar sem ég er búinn að læra lítið sem ekki neit fyrir það og verð liklegast að læra bara fyrir það í nótt. Því ég er svona líka löt akkúrat í dag. Af öllum dögum.

En jæja ættla að láta þetta duga í billli, ættl að fara að taka mig til og svo er búið að bjóða mér í mat niðri. Held það sé pizza. Lofar góðu.

Allaveg sé ykkur seina. Kv Ranka (allt í einu jólabarn)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 20:17:44 / ranka

Nóvember

Læt hér fylgja byrjun af færslu sem ég átti alltaf eftir að klára og setja inn. 

Jú ég er enþá á lífi. Gleymi bara alltaf að blogga fyrir ykkur. Jú Fríða mín það gerist nú margt og mikkið hér á Hvanneyri.

Ég átti fjósvakt um helgina með henni Auðnu. Fjósvaktinn samanstóð af þrem dögum, mjólkað tvisvar á dag nema hvað, og tvem eftirlitsferðum. Var nú ósköp rólegt og þegar við vorum á leið í okkar síðustu ferð í fjósið á sunnudagskvöldið vorum við hrædd um að hápunktu helgarinar væri þegar kálfarnir sluppu úr stíuni á laugardagskvöld. Komum að þeim hlaupandi um allt fjós.:) En ekki nó með það ég hafi mjólkað  í fyrsta skiptið á ævi minni þá sá ég líka kálf fæðast. En ein kýrin ákvað á sunnudagskvöldið að bera 10 dögum fyrir áætlaðan burðardag. Þetta var bara gaman.

En hér kemmur svo ny færsla handa ykkur.

 'Eg á nú að vera að læra en í staðinn fann ég mér eithvað annað að gera, t.d. Blogga, ég er búinn að setja upp jólaseríuna, búinn að taka til í þessu litla spaisi sem ég á hérna á Hvanneyri, sem betur fer fór ég aftur hingað í morgun, annars hefði ég verið í allan dag að taka til heima í kal.

Margt og mikkið búið að gerast. Árshátíð, og margt annað sem ég bara eingan vegin man hvað er. Öll kensla búinn og prófinn að byrja. Mikkið að lesa og mikkið að læra, afhverju var maður nú ekki sniðugur og lærði betur heima, en það er of seint í rasin gripið með það.

Bekkurinn minn er kominn með bloggsíðu ef eithver hefur áhuga, bondinn.bloggar.is þar er einnig hægt að sjá nokkrar myndir af okkur.

Fórum út að borða öll saman á fimmtudaginn þar sem þetta var síðasti fimmtudagur fyrir próf og líklegast fyrir jól. Eigum öruglega ekki eftir að djama öll saman fyrr en eftir jól. Fórum á Motel Venus á pizzu hlaðborð, vildi svo ekki skemmtilega til að annarbekkur var þarna líka.

Pabbi átti afmæli í gær, ég og lísbet fórum báðar heim í gær og færðum honum afmælisgjöf og köku, svo eldaði ég miðnætur afmælismat sem smakkaðist líka svona vel, ég var reyndar svo rosalega þreitt að ég næstum sofnaði við matarborðið og hafði því miður litla list, Svo tók ég mig til í morgun og bakaði köku og svo mátti ég ekki fara aftur fyrr en ég væri búinn að elda stóran pott af Grjónagraut handa Lísbet, svo ættluðu pabbi og lísbet að fá sér fyrir jólagraut í kvöld. 

Læt þetta duga í billi. Ég heyri í ykku seinna.

23 dagar til jóla og fyrsti í aðventu á morgun. :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 23:52:47 / ranka

Hæ aftur

Sælt veri fólkið

Hérna kemur svo skýrsla dagsins, eða kanski mánaðarins. Reyndar er ég svo fljót að gleyma þegar eithvað markvert gerist til að segja frá, hugsa samt alltaf, já þetta væri nú gaman að segja frá. Svo er ég búinn að gleyma því 5 sek seinna. En svona er nú það.
Fór á tónleika með honum Meistara Megas um helgina í laugardalshölini, sem voru hreyn snild. Megas í þrumustuði og Senuþjófarnir voru ekki smá flotir.  Maður hélt kanski að maður myndi heyra mest af nyju lögunum frá þeim, en þeir voru bara mjög duglegir að spila öll gömlu og góðu löginn, í flottum utsentingum. Það var semsagt bara mjög gaman þar.
Svo er maður bara búinn að vera á fullu í profum og svona. Var í 3 profum í síðustu viku og einu á mánudaginn síðasta. Náði öllu, sottan snillingur. Fór í prof í Mjaltavelarfræðum, fék 6.5 sem er bara mjög got þar sem ég hef, því miður, aldrey mjólkað. Það á reyndar að fara að laga það í byrjun nóvember þegar ég og Auðna eigum 3 daga vakt í fjósinu. Fjósastrákarnir eiga öruglega bara eftir að hrista hausinn yfir okkur
J
 .  Svo fór ég í Bókfærslupróf, sem gekk svona glimrandi vel eða 9.5 vel.  Svo var það Efnafræðin...  við skulum bara orða það svona að ef ég næ Efnafræðinni um jólinn mun ég hoppa hæð mína í loft upp. En ég náði profinu í síðustu viku.  Fór svo í Nytjajurtapróf á mánudag sem gekk svona lala, gleymdi reyndar að læra einn kaflan sem var með 15 % sp á prófinu, en ég náði samt með 6.9 sem er næstum 7 ;)
Það var farið með okkur í bændadeild 1 og 2 í ferð í uppsveitir Borgarfjarðar í  upphaf okt. Mér fannst eins og ég hafi heyrt öll þessi bæjarnöfn áður og keyrt þessa vegi áður.  Gat bara eingan veginn komið því fyrir mér hvar ég hef heyrt eða séð þetta áður. Og ekki batnaði það þegar við keyrðum fram hjá stórbylinu Kalmanstungu, ég get svarið að ég hef komið þangað áður, bara eingan veginn man hvenær það var
J . Það kannski rifjast upp fyrir manni.
Ættli þetta sé ekki bara komið í kvöld. Ég læt vita af mér aftur fyrir jól.

Kv Ranka :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 00:38:23 / ranka

Hæ hó Hæ hó

Ég held að ég hafi verið búinn að lofa að vera dugleg að blogga hérna á Hvanneyri. Allavega duglegri en ég hef verið. Ég hef bara verið eithvað svo andlaus síðustudaga enda mikkið búið að ganga á. Byrjaði á því á fyrsta deginum í skólanum að byðja um réttarfrí, sem var auðfengið enda í landbúnaðarskóla. Vorum nú komin á þá skoðun heima að mæður ætti nú að fá bara einingu fyrir þetta og kalla þetta starfskyningu. Hef nú reyndar ekki lagt þá hugmynd fyrir Álfheiði en ætti kannski að gera það. :)

Smallamensku gengu svona stóráfalllaust fyrir sig, allir hressir, aðrir hressari en aðrir. Nefni einginn nöfn, en það var ekki ég í ár;). Allir komust heillir heim, en þrátt fyrir varúðar ráðstafir mínar á leiðinni heim úr fjárhúsunum á föstudeginum sökum reynslu síðasta árs var ég nú hlaupinn niður af hesti og knapa. Annað hvort dettur maður af bakki eða er hlaupinn niður. Ég á bara ekki að komast heil heim. (Ég mundi samt eftir heimferðinni ;)). Í Braggakafi var fáment en EINSTAKLEGA góðment, og sú nýung var gerð að teppalegja Braggakafi sem lagðist bara vel í liðið enda einstaklega hendugt að taka sporið á teppinu eins og Jenni syndi svo snildarvel.

Svo er skólinn bara byrjaður á fullu. Og nó að gera þar. Er held ég bara í skemmtilegum fögum. Fyrir utan kanski Efnafræðinna, sem er kannski allt í lagi ef hún væri ekki svona erfið. Stundarskráinn hljómar svo upp á Bókhald, Raf og málmsuðu, Búfjárrækt, Búvélafræði, Hrossarækt, Plöntu og nytjajurtir, Efnafræðinn og svo einn svona tölvu og upplysingatími. Allt saman mjög spennandi og skemmtilegt. Ég er nú farinn að hljóma eins og allt sé voða gaman og auðvelt og ég þurfi ekkert að hafa fyrir hlutunum. En það er langt í frá. Komst að því að lærdómspúkinn er ekkert heimakærari hérna á Hvanneyri og í bænum, svo er ég ekki frá því að mætingarskyldan og verkefna skill séu talsvert strangari hér en í fjölbraut. Þannig að það er ekkert mama mía og lærdómspúkinn er tjóðraður inni þegar hann lætur sjá sig. En það er líka gaman. Og þar sem ég er í Hrossarækt þýðir það að ég er með hest á Miðfossum og maður fer svo í hesthúsið á hverjum degi, sem er góð tilbreiting við skólastofuna.

Held að þetta sé nú bara komið nó í billi svo ég bið ykkur bara vel að lifa.
Kv Ranka


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 13:50:32 / ranka

Hef sagt það áður og segi það aftur, ég kem alltaf aftur...

   ... svona hálfs árs fresti. Ég vissi að ég hefði átt að setja páskaþemað upp þarna um daginn. ;)

Annars er bara allt gott að frétta af mér. Er á fullu að pakka og flytja, er reyndar búinn að flytja megnið af dótinu, en öll húsgögnin og talvan er eftir. Ótrúlegt en ég sver að ég átti ekki svona mikið dót þegar ég flutti inn. Svo er síðasta vikan í vinuni að byrja, Ólafía kemur á fimmtudag og tekur við lyklunum og svo er ég bara bless bæ farinn af steinsteypunni.  Svo byrjar skólinn 3 sept. Mér er farið að hlakka soltið til að komast þangað uppeftir og byrja. Fékk loksins að vita að ég fékk inn á heimavistina, svo ég mun ekki búa hjá mömmu. En það er ekki þar með sagt að hún sé laus við mig. Er búinn að bjóða sjálfri mér í mat til hennar nokkrum sinnu í  vetur. En fyrir svona þá sem ekki eru að fylgjast með er ég að fara í Búfræði í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Er semsagt loksins að flytja úr bænum og upp í sveit. Skil ekkert í mér að vera ekki löngu farinn. En svona er það. En ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Ég vona að ég verði aðeins duglegri að bloga í vetur, svona til að leyfa ykkur að fylgjast með mér þarna á Hvanneyri.

Síðasta kveðjan úr kjallaranum í Brekkutanganum :)
Ranka


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 00:14:42 / ranka

Góðir hlutir gerast hægt.

Ég ætti kanski að setja páskaþema á síðuna mína þá þarf ég ekkert að gera svona fram á vorið.

En nú vitið þið að ég er allavega á lífi.

Skrítið til þess að hugsa að fyrir svona ári bjó ég í Breiðholtinu. Og síðan þá eru liðinn mörg ár. Allavega finnst mér. Það samt er svo stutt síðan ég flutti í Mosó. Samt bráðum búinn að búa þar í ár.

Svona er lífið skrítið.

Sé ykkur seina, mínnir dyggu áhangendur, ef eitthverjir eru eftir.

Over and out.

Ranka:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 14:16:07 / ranka

Jólakveðja

Vildi Bara óska öllum Gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs.

Jólakveðja Ranka 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 22:31:59 / ranka

Það er búið að opna.

www.blog.central.is/kalmanstunga


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 23:55:27 / ranka

Hæ öll

Hæ aftur, nú er haustið fer að boða komu sína, skólarnir byrja aftur og jarm lamba sem koma spikfeit af heiðum boða koma sína mæti ég aftur til leiks ykkur til mikilla gleði. Já það hefur margt gerst á þessu góða sumri ’06, eftir minnilegats er án efa Þjóðhátíð í eyjum. Sem var án efa tær snilld. Meira um það seina, hver veit nema í myrku skammdeigi vetrar að ég rifji upp þjóðhátíð 2006 og annað markvert sem gerðist í sumar.

Með haustinnu koma breytingar eins og þær að ég var að ljúka síðasta vinnudegi mínum hjá Garða og umhverfisþjónustunni í dag, og mun ég mæt eldhress í nýja/gamla vinnu á mánudaginn. 11-11 Hraunbær mun semsagt njóta vinnukrafts míns í vetur. Einnig er ég búinn að skrá mig í fjarnám í vetur í jarðfræði og stærðfræði 400, sem verður allt annað en auðvelt, en ég hef þá eitthvað að gera í vetur.

Tveir fjölskyldu meðlimir bættust í hópinn um daginn og erum við orðinn 3 + allar kongulærnar , þeir heita Snúður og Tumi. Tveir yndislegir fresskettir. Þannig að mér á ekki eftir að leiðast í vetur.

n jæja þá held ég að það helsta markverðasta sem gerst hefur síðan síðast sé hér með komið á netið, ef ég hef gleymd einhverju þá verður bara að hafa það. Þanga til næst hafið það gott.                                               Kveðja úr Mosó.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Könnun
Sumarfríið?





Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Myndasöfn